Vá hvað það er mikið að gera hjá mér. Ég hef satt að segja ekki tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég er s.s. á fullu í vinnunni alla daga frá 9-17 svo kem ég heim og fer að læra. Vissi að þetta myndi verða erfitt en damn, þetta er nú algjör geggjun. Svo er stór dagur á morgun. Er að fara á ráðstefnu í Smáralindinni sem fjallar um markaðssetningu á netinu. Einnig er ég að fara að halda mína fyrstu kynningu á vefkerfinu á morgun. Þarf s.s. að skutlast smá af ráðstefnunni. Svo er kokteill á eftir þar sem við eigum að mingla við ráðstefnugestina og veita þeim upplýsingar um kerfið okkar og skapa sambönd. Seinna um kvöldið ætlum við vinnufélagarnir að fara saman út að borða á Apótekið og kynnast aðeins, ætli við skellum okkur svo ekki smá út. Ég veit ekki hvort ég ætla að vera lengi. Þarf að læra á bæði laug og sun. Eins og má sjá þá hef ég nóg að gera en þetta er allt mjög skemmtilegt sem gerir lífið aðeins bærilegra. En ég væri alveg til í að hitta þær sem eru í bænum á kaffihúsi í næstu viku. Kannski á miðvikudagskvöldið næsta? Hverjar komast. Set þetta líka inn á bleika bloggið.
Svo næsta föstudag er ég að fara á Prodigy tónleika, hlakka geðveikt til!!!!!!!!
En verðum í bandi með kaffihúsaferð.
Knús frá súper uppteknu konunni!!!!

1 ummæli:
Hvernig var svo á föstudaginn? var ekki gaman.. plöggaðir þú ekki helling af samböndum :)
Skrifa ummæli