6. des. 2004

Afmælisblogg

Það var fyrir bráðum 25 árum sem móðir mín blessunin var stödd á fæðingardeild Landspítalans og var að berjast við það að fæða barn, sem hún var handviss um að væri stelpa, með miklum erfiðis munum. Þeir sem til þekkja vita að mamma mín er mjög lítil og nett kona, og var það meira en að segja það fyrir hana að fæða þetta líka risabarn sem var 55 cm og 15 merkur. Varð læknirinn að leggjast nánast þvert á hana til að hjálpa barninu í heiminn. Svo loksins þegar mér þóknaðist að koma í heiminn var ég sko aldeilis ekki á því að gráta heldur virti heiminn aðeins fyrir mér fyrst. Það endaði með því að læknirinn, eftir að hafa bankað og hrist mig svoldið, hljóp með eftir endilöngum ganginum til að fá mig til að draga andann. Móður minni var sko aldeilis ekki skemmt, get ég sagt ykkur. En þetta tókst =)

Já mér finnst nú pínu lítið skrítin tilfinning að hugsa til þess að eftir tæplega 6 klst sé ég orðin 25 ára. Ég nú nánast búin að gera allt sem ég ætlaði mér, hefði verið til í að vera útskrifuð úr náminu mínu en ég er alveg róleg ennþá, þarf fyrst að hafa áhyggjur ef ég verð ekki búin að klára þetta fyrir þrítugt.

Ég hélt upp á afmælið mitt í gær fyrir nánustu fjölskyldu, bauð þeim í síðbúinn hádegisverð heima í Saltinu. Þetta gekk alveg frábærlega vel og var alveg yndislegt að hitta alla. Enda hef ég ekki haldið upp á afmælið mitt hérna heima í 4 ár, það gerði þetta sérstaklega eftirminnilegt. En það er nú annað boð eftir, því þann 18. des ætla ég að bjóða vinum mínum í partý. Staðsetningin er alveg að komast á hreint og mun ég senda mail til allra sem boðnir eru í lok þessarar viku. Nú í gær fékk ég margar góðar gjafir, m.a. bók, snyrtivörur, bakpoka og peninga. Takk kærlega fyrir mig =)

Á morgun er það svo bara vinna vinna en við gerum kannski eitthvað spes um kvöldið. Mér finnst líklegt að það verði eldað eitthvað gott hérna heima og svo bara kúrt og kannski horft á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu.

En ég vona að þið hafið það sem allra best og gangi vel með allt það sem er að gerast núna hvort sem það er lestur, verkefnavinna, jólagjafainnkaup, vinna eða eitthvað annað.

Knús

Helgan bráðum afmælisstelpa

1 ummæli:

Inga Elínborg sagði...

Innilega til hamingju með afmælið sæta. Get varla beðið eftir að koma í afmælið þitt 18. des :). Vonandi verður dagurinn í dag alveg frábær.