29. nóv. 2005

Jóla jóla...

Jæja þá, eru ekki allir komnir í jólaskap. Ég er amk komin í alveg æðislega mikið jólaskap og nota hvert tækifæri til að hlusta á jólalög og undirbúa jólin. Fer á jólatónleika á föstudaginn með fjölskyldunni, ætla að baka smákökur um næstu helgi, skera laufabrauð um þar næstu helgi. Inná milli verður svo skrifað á jólakort og pakkað inn gjöfum. Svo ætla ég að skella mér í afmælis/jólaferð til Gautaborgar og heimsækja vinkonur mínar þær Josefin og Katarinu 16.-19. des og svo kemur Freysinn minn þann 23. des. Get nú bara ekki beðið eftir að sjá hann og knúsa. Þannig að það er nóg að gera =)

Fór í 20 vikna sónarinn í gær og það var allt í mjög fínu lagi. Alveg ótrúlega gaman að fá að sjá krílið, orðið svo stórt og farið að gera svo margt. Það var mjög duglegt að sýna allt sem það getur. Teygði vel úr sér, togaði í tærnar, opnaði munninn, hreyfði hendurnar og spriklaði heil ósköp. Setti inn myndir hér til hliðar. Fékk líka að vita kynið en ég ætla ekki að segja frá alveg strax....tihí.

En hafið það gott nú í desember og munið að lífið er dásamlegt.

Engin ummæli: