Jæja gott fólk, þá er maður á leiðinni af klakanum yfir helgina til Svíjaríkis, ntt til Gautaborgar. Hlakka ekkert smá mikið til að hitta Josefin og Katarinu bestu vinkonur mínar þar. Ár síðan síðast, þegar þær komu hingað til Íslands. Nú er komið að mér. Flýg sum sé um 14 í dag og kem aftur um svipað leyti á mánudag. Voða stutt stopp en við komum nú til með að vera duglegar. Ætlum bara að taka því rólega í kvöld, förum að versla á morgun og eldum og kíkjum kannski aðeins í bæinn. Förum svo í Jóla Liseberg á sunnudeginum og út að borða um kvöldið. Mjög stutt en mjög markvisst =). Það verður gaman að sjá svipinn á þeim þegar þær sjá bumbuna =)
Hitti svo Inguna og Árnann á Kastrup á mánudagsmorgunn, þau voru svo endalaust mikil krútt að breyta miðunum sínum til að við gætum flogið saman heim. Þurfa að vakna/fara mjög seint að sofa, um 3 leytið aðfaranótt mánudags. Hlakka til að sjá ykkur og hafa það skemmtilegt á vellinum og í vélinni. Þið getið hjálpað mér að velja mygluosta handa tengdó =)
Annars er ég bara búin að undirbúa jólin að mestu leyti, á eftir að þrífa og skreyta, versla smá mat (ma piparkökudeig fyrir Freysann) og pakka inn nokkrum pökkum. Dunda mér við þetta þessa 3 daga áður en Freysinn kemur heim. Sæki hann svo á föstudaginn eftir viku, mjög snemma um morguninn. Minnir að hann lendi um 7. Hlakka alveg endalaust mikið til að sjá hann.
Svo eru það bara jólaboðin, maturinn og allir skemmtilegu hittingarnir sem eru framundan. Þetta verða yndisleg jól =)
Bumbukrílið hefur það mjög gott, sparkar og sparkar en finnst held ég ekki mikið af reyktum mat gott. Mér líður amk ekkert sérstaklega vel eftir td hangikjötsát þannig að ég verð að minnka neysluna töluvert held ég yfir hátíðirnar. Fæ mér bara meira af meðlætinu. Svo er kalkúnn á jóladag hjá Auði ömmu hans Freys þannig að það er fínt.
En hafið það nú gott og skemmtið ykkur sem allra best við undirbúninginn....passið ykkur að láta ekki íslenska brjálæðið ná tökum á ykkur. Hlakka til að sjá alla og knúsa.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Já það verður sko ekkert smá gaman hjá okkur á Kastrup og í vélinni. Hlakka endalaust mikið til að sjá þig/ykkur, tíhí.
Skemmtu þér rosa vel í Gautaborg og njóttu tímans með vinkonunum.
Hæ elskan, núna ertu stödd í Gautaborg, vonandi er æðislega gaman hjá ykkur! :-) Hlakka til að sjá ykkur fljótlega! Knús og kys
Skrifa ummæli