Jæja þá er ég búin að setja inn smávegis af nýjum myndum. Sónarmyndir, bumbumyndir svo þið getið fylgst með vextinum =) og svo setti ég inn myndir frá jólum og áramótum.
Aðgangsorðið er sætasti bíllinn, en annars sendið mér endilega póst til að fá lykilorðið að myndunum =)
Annars er allt gott að frétta. Var að átta mig á að því að það eru bara 10 vikur þangað til að ég fer í fæðingarorlof og 10-14 vikur þangað til að það má búast við því að litla barnið láti sjá sig. Man hvað fyrstu 12 vikurnar voru fljótar að líða þannig að við Freyr verðum orðin foreldrar áður en við vitum af =) sem er alveg æðisleg tilhugsun.
Svo eru bara 10 dagar þangað til að ég fer til Freys til NY og í síðustu flugferðirnar mínar á meðgöngunni. Ætlum að koma íbúðinni í betra stand, skoða barnadót og láta loksins verða af því að labba saman í Central Park og kíkja kannski í eins og eitt safn, Guggenheim eða Museum of modern art. En umfram allt ætlum við að njóta samverunnar og bumbutímans saman...
En nú er komin tími fyrir svefn hjá bumbulínunni.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli