16. maí 2010

Frábær sunnudagur!

Þá er ég búin að endurvekja bloggið mitt eftir nokkurra ára hlé. Fannst ég þurfa að fara að byrja að tjá mig aftur. Af nógu er að taka amk. Hugmyndin er að setja í raun allt milli himins og jarðar hérna inn.

Í dag verður yndislegur dagur með vinum. Ætla að skella mér í sund með Hlyni mínum og taka eitt aukabarn með og bjóða Rúnu með. Í sundinu ætlum við að hitta Ingu vinkonu og hennar fjölskyldu og Hrönn hittir okkur líka líklegast. Eftir sundið verður síðan grillað og notið veðurblíðunnar.

Frábær sunnudagur!

H

Engin ummæli: