24. feb. 2004

Kominn tími til.

Loksins loksins, farin að blogga smá aftur. Er reyndar búin að vera ágætlega duglega að senda fólki fréttir gegnum tölvupóst en núna verður allt sett inn á bloggið.
Ég er sem sagt komin til Gautaborgar aftur og er á fullu að vinna í verkefnunum mínum. Stefni á að útskrifast í vor. Er reyndar búin að skella mér einu sinni til Íslands, var í rúmlega viku, og náði að vinna stóran hluta af verkefninu mínu plús að komast í tvö 25 ára afmæli hjá vinkonum mínum. Þetta var skemmtileg ferð!!! =)
Helgin er búin að vera frekar róleg bara. Ég kom aftur til Gautaborgar frá Íslandi á föstudaginn og var komin heim íbúðina kl 17:30 að staðartíma. Gerði mest lítið annað en að pakka upp dótinu mínu og slappa af. Laugardagurinn var ekkert sérstaklega spennandi, ég var að læra um morguninn vegna þess að kl 13:30-17:30 var próf. Þetta var hið æsi spennandi VOC/MCT ensku málfræðipróf sem ég er búin að vera að basla við lengi. Ég held að mér hafi gengið allt í lagi en það er aldrei að vita samt. Vonum það besta bara. Á sunnudaginn fór ég svo til Höllu og Atla til að passa Egil Gauta, sem er 1 árs og 4 mánaða krútt, á meðan Halla keyrði Atla á flugvöllinn. Hann var að fara til Brasilíu í æfingaferð með fótboltaliðinu sem hann er að spila með hérna í Gautaborg. Ekki leiðinlegt það. Þegar Halla kom til baka þá var ég búin að svæfa drenginn og var bara að læra en svo ákváðum við að baka nokkrar vatnsdeigsbollur í tilefni bolludagsins. Mmmmm.....
Svo í gær var ég alveg einkar öflug og fór í bæinn til að stússast, keypti m.a. snúrur til að tengja nýja videoið okkar við sjónvarpið og heimabíókerfið. Ég komst síðan að því seinna um kvöldið að ég er vægast sagt snillingur þegar kemur að því að tengja svona dót. Tókst bæði að tengja tölvuna við breiðbandið og svo videoið!!! Skellti mér líka í Krafttag tíma eftir að hafa verið í bænum, það er svona body-pump. Var ekkert smá þreytt eftir það, þannig að ég fékk mér svona orku smoothie til þess að ég hefði orku til að þvi þvottinn kl 17. Það var orðið hálfgert neyðarástand, engir sokkar eða nærföt eftir. Ætlaði líka að reyna að ná að þrífa heima en það voru bara ekki nógu margar klukkustundir í þessum sólarhringnum þannig að það verður gert í dag. Kl 21 var svo E.R., splunkunýjir þættir, og á sama tíma C.S.I. en ég tók það bara upp, hehe, og horfði á það þegar ég var búin að horfa á ER. Held að það sé ekkert sérstakt í imbanum í kvöld en á morgun er Friends.

Jæja best að fara að koma sér að verki, það er ótrúlega mikið drasl hjá mér. Fékk lánaða videotökuvél hjá ma og pa til að taka myndir af öllu hérna áður en ég flyt til að sýna. Ætla reyndar ekki að taka upp fyrr en ég verð búin að þrífa!!!

Knús til allra, Helga

Engin ummæli: