Halló allir
Langaði bara að segja ykkur hvað lífið mitt er einstaklega óspennandi þessa dagana. Ég geri ekkert annað en að vinna í verkefninu mínu, borða, hreyfa mig (annars myndi ég ganga af göflunum) og sofa. En þetta fer nú vonandi að verða búið og ég get bara ekki beðið!!!
Svo er ég á leiðinni heim til Íslands núna á föstudaginn, vonandi get ég séð sem flesta. Er að fara að hjálpa mömmu og pabba með ferminguna hennar Kristbjargar systur. Ótrúlegt að hún sé orðin svona gömul. Jæja en núna ætla ég að fara að koma mér í skólann til að halda áfram að vinna.
Ég á EKKERT líf!!!!
Kveðja, plugghästen (lestrarhestur á sænsku)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli