Jæja gott fólk
Þá er ég komin heim til Íslands, kom á föstudaginn eins og þið kannski vitið. Ég veit ekki hversu lengi ég kem til með að vera, það kemur allt í ljós á eftir vonandi ef kennarinn minn sendir mér póstinn sem hann var búinn að lofa að senda mér. Þetta veltur s.s. allt á því hvort að ég þarf að taka þátt í smá ráðstefnu eða ekki. Ef ég þarf að taka þátt þá fer ég til Gautaborgar mánudaginn 22. mars og kem svo aftur til Íslands kringum 30. mars aftur og verð á Íslandi yfir páska. Nú ef svo skemmtilega vill til að ég þarf ekki að taka þátt þá verð ég hérna fram yfir páska til ca 20. apríl. Gott að geta stoppað svona lengi.
Helgin er búin að vera frekar annasöm. Ég eyddi mestum tímanum í að hjálpa mömmu og pabba með ferminguna sem er næstu helgi. Öll kvöldin í þessari viku fara líka í fermingarstúss. Það er alveg ótrúlegt hvað það þarf að gera margt en þetta er mjög skemmtilegt og er litla systir mín orðin frekar spennt.
Svo er það bara að læra læra læra á daginn. Mér gengur alveg ágætlega en þetta tekur langan tíma að koma þessu almennilega saman.
Helgus travellus
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli