Þá er nú orðið frekar langt síðan að ég skrifaði en nú verður bætt úr því. Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Á laugardeginum skelltum við okkur skötuhjúin á árshátíð KB banka sem var haldin í Haukaheimilinu í Hafnarfirði. Þetta var ekkert smá stór og mikil veisla, enda var sett Íslandsmet í árshátíð og verið með borðhald fyrir rúmlega 1500 manns. Maturinn var góður og skemmtiatriðin voru ágætlega skemmtilega þó að ég hafi nú ekki fattað nema smá brot af bröndurunum. Eftir matinn hélt Bítlavinafélagið uppi stuðinu og dönsuðum við mjög mikið. Virkilega gaman allt saman! Vorum komin heim frekar seint en það gekk samt furðuvel að vakna til að mæta í ferminguna.
Fermingin hennar Kristbjargar gekk bara eins og í sögu og voru allir mjög ánægðir með matinn og veisluna. Kristbjörg fékk margar góðar gjafir og var hæstánægð með daginn, sem var auðvitað það mikilvægasta.
Vikan byrjaði svo mjög rólega og var ég mest að slappa af en svo er ég aðeins búin að vera að stússast í herberginu okkar, keypti Billy hillu í IKEA og setti upp fyrir aftan hurðina til að setja bækur og annað dót í. Ekki hægt að hafa þetta allt á gólfinu. Svo fór ég í gær og hitti Ástu á París í hádeginu og fórum við síðan í bæinn og spjölluðum heilan helling. Við erum líka byrjaðar að undirbúa 5 ára stúdentsafmælið okkar og vorum að skemmta okkur við að slá inn kennitölur til að finna liðið. Í kvöld er ég svo að fara að hitta Ingu á kaffihúsi og spjalla, mjög langt síðan við höfum gert það!
Ætli helgin fari ekki í að lesa, gera skattaskýrsluna og vinna í íbúðarmálum. Nóg að gera!
Helga letilíus
p.s. verð á Íslandi til 20. apríl.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli