16. maí 2004

It hurts, really hurts......

Er nú ekki kominn tími til að ég segi nú aðeins hvað ég er búin að vera að gera undan farið? Mér finnst það.
Soooo, here it goes! Ég er búin að vera að skipta tíma mínum á milli þess að pakka og læra, læra og pakka.
Það er alveg ótrúlegt hvað maður á af drasli verð ég að segja, þó ég sé búin að vera frekar duglega að henda
og fara í gegnum dótið okkar með reglulega millibili. Ég er samt alltaf jafn hissa á hvað ég sanka að mér
miklu dóti, og bókum, who needs them!!!!?????

Já svo var Júróvision í gær og mér fannst hann Jónsi karlinn standa sig vel. En það virtist samt að hann væri
eitthvað óöruggur eða þá að það var ekki nógu hátt stillt hjá honum þarna í byrjun en þetta endaði samt vel.
Hefðum mátt fá meira af stigum en við verðum greinilega að fara að senda eittthvað þjóðlegra, t.d. hvernig
væri að einhver myndi semja nútímalegan fimmundarsöng næst? Nei bara smá hugmynd.
Lena PH, sem flutti sænska lagið, stóð sig líka vel. Það er merkilegt hvað Svíjar fá alltaf af stigum, þetta mallar
svona hægt og rólega inn.

Ég er langt komin með að pakka s.s., svo er hann Kristján, sem er að fara að taka við íbuðinni, búinn að vera
að koma með dótið sitt og setja í skápana hjá mér svo og að koma með rúm sem hann setti í vinnuherbergið.
Ég ákvað í gær að það væri best að flytja vinnuherbergið inn í svefnherbergið til að það væri amk eitt herbergi
sem væri tiltölulega drasl og kassa laust. Get bara ekki hugsað og unnið þegar það er mikil óreiða í kringum mig.

En núna er ekki langt þangað til að ég kem heim, 15 dagar nákvæmlega. En það er 2 heimsóknir eftir, fullt af vinnu
í skólanum og svo pakka pakka pakka... Pabbi Runólfur kemur næsta sunnudag í stutta heimsókn. Svo kemur
Freysinn minn 26. og fer heim með mér þann 1. júní, æðislega gaman!! Hann er reyndar ekki búinn alveg að bóka
og allt það en það er mjög líklegt að hann komi. Ég þarf hjálp við að koma draslinu í Eimskip fyrir hvítasunnuna svo
er manns bara að flytja heim til Íslands. Skrítin tilfinning en góð.

Sjáumst, Helgan (sem er orðin leið á að flytja dót)

Engin ummæli: