Nú er það lokaspretturinn! 35 dagar þangað til ég flyt heim til Íslands og það er svakalega margt sem á eftir að gera. Er að reyna að fara ekki yfir um á stressinu og gengur allt í lagi. Er búin að skipuleggja mig ágætlega og hvað gerist þá, auðvitað fær maður kvef!! En ég er sannur Íslendingur í bullandi afneitun og er barasta ekkert með neitt kvef!!!!!
Það er sum sé lestur, skrif, próf, einn kúrs, pökkun á drasli, skriffinnska svo ekki sé minnst á þrif eftir áður en ég kveð landið. En ég er nú svo mikið ofurkvendi að þetta verður ekkert mál =S
Hafið það gott allir á Íslandi og Gleðilegt Sumar!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli