Jæja þá er nú allt að komast á sinn stað. Ég er nánast búin að taka upp úr kössunum (þeim sem á að taka upp úr amk) restin fer í geymsluna. Kjallaraherbergið er aldeilis búið að skipta um útlit. Það er komið nýtt rúm, ný hilla og nýjar myndir, bara orðið virkilega kósý. Við erum svo fegin því að fá að búa hérna og safna okkur fyrir íbúð.
Þannig að nú er bara málið að klára skólann og finna vinnu. Er búin að sjá nokkrar sem ég ætla að sækja um. Kisan er hress að venju, finnst ekkert skemmtilegra en að leika sér og hoppa á tærnar á manni, algjört krútt!!
Í gær var svo verið að stússast, fór í bíó á Harry Potter og horfði svo á hlutann af NBA leiknum, Lakers ekki að standa sig, þannig að ég fór þvílíkt seint að sofa. Verð eiginlega að leggja mig ef ég á að meika að hitta stelpurnar á bleiku djammi (allar verða að vera í einhverju bleiku) í kvell. Við erum búnar að stofna nýtt blogg fyrir klúbbinn okkar og erum með síðuna www.bleikugellurnar.blogspot .com, kíkið endilega á okkur.
Nú svo er 17. júní á morgun, ætli maður kíki ekki í bæinn og skoði mannlífið. En núna er tími til kominn til að fá sér morgunmat.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Mikið var að kommentin voru sett inn ;) Bara svona hálfu ári eftir að þú byrjaði að blogga.
Skrifa ummæli