21. júl. 2004

Margt að gerast

Já ég veit, ég er ekki búin að vera dugleg að blogga að undanförnu en það er bara búið að vera allt vitlaust að gera hjá mér þessa dagana. Núna um þar síðustu helgi var gæsunin hennar Ingu og er ég búin að setja upp nokkrar myndir. Um síðustu helgi var reunion sem var mjög skemmtilegt en ég var ekkert smá þreytt um kvöldið vegna anna um daginn. Svo er ég búin að vera að hjálpa ömmu minni við að flytja og ofan á allt saman reyna að læra eitthvað líka.
Núna á morgun erum við að fara norður á Akureyri í brúðkaup hjá Bergi frænda og Berglindi unnustu hans sem verður haldið á laugardaginn. Við ætlum að fara fyrr til að komast aðeins úr bænum, erum eiginlega komin með smá ógeð á Reykjavík í bili. Hlökkum ekkert smá til að hitta Höllu og Atla vini okkar sem eiga litla Egil Gauta. Þau voru bestu vinir okkar úti í Gautaborg og eru alveg frábær. Planið verður þannig að við komum seint á fimmtudagskvöldið til þeirra og ætlum svo að eyða föstudeginum saman, fara í sund, skoða Akureyri og nágrenni og fara síðan saman út að borða um kvöldið. Svo á laugardaginn er brúðkaupið klukkan 16 og veisla um kvöldið, alltaf gaman að fara í veislu og borða góðan mat. Svo er planið að fara heim á sunnudeginum.
Aumingja kisa verður ein heima á meðan við verðum í burtu af því að heimilisfólkið er á leiðinni til Barcelona á morgun. En nágrannarnir ætla að gefa henni að borða en hún verður örugglega alveg svakalega einmana greyið.

Eigið öll skemmtilega helgi!!!


Engin ummæli: