26. júl. 2004

Viðburðarík helgi =)

Þá erum við komin heim eftir skemmtilega helgi á Akureyri. Við hófum ferðina á fimmtudaginn og keyrðum út úr bænum um 19. Ætluðum að fara miklu fyrr en eins og alltaf þá kemur eitthvað upp á sem tefur fyrir manni. Ég þurfti til dæmis að fara fyrr um daginn og bæta við gjöfina vegna þess að það voru fleiri sem vildu vera með. Síðan þurfti ég að kaupa mér sokkabuxur og stússast aðeins meira í bænum en ég hélt þannig að ég kom seinna heim en áætlað var til að pakka og fara
í sturtu. Svo fattaði mamma þegar við vorum að fara að leggja af stað að Freyr væri með hátíðarbúnings skyrtuna hans pabba hjá sér, heppin þar. En þetta gekk allt að lokum.
Ég var 4 klst að keyra á Akureyri og vorum við komin um 23. Þar biðu okkar Halla og Atli, við gistum s.s. heima hjá þeim fyrstu 2 næturnar. Á föstudaginn tókum við því frekar rólega og grilluðum og spiluðum Pictionary, virkilega skemmtilegt. En á laugardaginn var komið að því að Bergur frændi og Berglind unnusta hans myndu gifta sig. Athöfnin hófst kl 16 og veislan kl 18.
Athöfnin var alveg yndisleg og meiriháttar falleg. Fyrsta lagið, Kvöldsigling, sem var sungið bar texta eftir Jón afa og má segja að öll fjölskyldan hafi átt frekar erfitt með að halda tárunum í burtu. Veislan var mjög vegleg og maturinn góður. Eina leiðinlega var að það var einhver sem fór heim í jakkanum mínum en hann hlýtur að fara að koma í leitirnar. Gaman að hitta alla fjölskylduna og djamma smá með þeim. En við hittumst mjög fljótt aftur út af því að Helgi frændi og Mekkin unnusta hans eru að fara að gifta sig þann 6. ágúst. Rosa mikið að gera í brúðkaupum þessa dagana. Reyndar er búið að hætta við eitt sem átti að vera þann 14. ágúst. Parið er hætt saman. Við gistum svo á svaka flottu gistiheimili síðustu nóttina, rosa kósý og skemmtilegt. Sunnudagurinn fór svo að mestu í að taka því rólega og njóta góða veðursins og svo að keyra aftur heim.
Þá er bara að koma Verslunarmannahelgi og ætlum við ekki að gera neitt sérstakt. Helgina fer að mestu í lærdóm. Reyndar er búið að bjóða okkur í eitt matarboð sem við ætlum í en ég stórefast um að ég djammi. Svo er bara komið að því að Ingan og Árninn gifti sig þann 7. ágúst. Hlakka ekkert smá mikið til. Ekki má heldur gleyma að Freysinn á ammli þann 3. ágúst og verður 26.

En núna er víst komið að morgunmat í heiminum hennar Helgu, sjáumst =)

Engin ummæli: