4. ágú. 2004

Slatti að gerast þessa dagana.

Fullt að gera þessa dagana. Er búin að vera að undirbúa myndasýninguna sem ég ætla að vera með á laugardaginn þegar Inga mín og Árninn hennar gifta sig. Það er eiginlega ótrúlegt að þessi dagur skuli vera kominn, vá hvað tíminn er fljótur að líða!! En ég hlakka alveg æðislega mikið til. En það er ekki nóg með það heldur erum við að líka að fara í brúðkaup á föstudaginn. 2 brúðkaup um eina helgi, nóg að gera.
Fórum líka í afmæli til Birkis Snæs í dag, mann er bara orðinn 1. árs töffari. Takk kærlega fyrir rosa fínar veitingar, Ingibjörg og Biggi.

En best að fara að koma sér í bólið

Engin ummæli: