8. ágú. 2004

Brúðkaupshelgin mikla!

Þá erum við búin að mæta í öll þau brúðkaup sem okkur var boðið í þetta sumarið. Vá hvað það er búið að vera að skemmtilegt, allar veislurnar frekar ólíkar. Á föstudaginn giftu Helgi frændi og Mekkin sig í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og svo var veisla í Haukahúsinu á Ásvöllum held ég að það heiti. Það var hlaðborð með alveg svakalega góðum mat, lasagna, grísku kartöflusalati, pajellu, brauði með pesto, kjúklingabringum og fleiru góðgæti. Svo var ísterta í eftirmat, nammi namm....
Á laugardaginn var svo komið að því að Inga mín myndi giftast Árnanum sínum. Þau giftu sig líka í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, veislan þeirra var svo haldin á Hótel Sögu í Sunnusalnum, frábærlega flott allt saman. Þar var formlegt borðhald, lax í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og svo kaka í eftirmat. Ég hélt ræðu sem að ég komst því miður ekki í gegnum nema fella nokkur tár og klökkna svolítið, en það var allt í lagi. Eftir ræðuna sýndi ég svo myndasýninguna og gekk allt upp, fyrir utan að hljóðkerfið var svoldið lélegt.
Í dag er ég svo búin að vera að gera bara ekki neitt, hef ekki orku til neins. Freysanum var boðið í grillveilsu með vinnunni þannig að hann fékk ekki frí.
Núna er það bara læra læra læra og sækja um vinnur. Erum reyndar að fara að gera fullt af skemmtilegum hlutum líka. Á mán erum við að fara að sjá Shrek 2 með Nönnu og tengdó, á þri er ég að fara á Pink tónleikana með Hrönn vinkonu, á mið er það svo 50 Cent með Frey. Farin að hlakka ekkert smá til, elska að fara á tónleika. Svo er það alveg spurning hvort maður skellir sér ekki á James Brown!

En ætla að fara að reyna að gera eitthvað nytsamlegt.

1 ummæli:

lou sagði...

þokkalega kemurðu bara á James Brown líka :) og sjáumst á 50 cent :)