Jæja þá eru nú aldeilis hlutir að gerast hjá mér. Ég er s.s. búin að fá vinnu sem sölufulltrúi og vefráðgjafi hjá Íslenskum fyrirtækjum ehf. / e.c. Software. Þetta er s.s. fyrirtæki sem sérhæfir sig í veflausnum fyrir stór og smá fyrirtæki. Mjög spennandi, maður þarf að rannsaka fyrirtækin fyrst sjá hvað þau þurfa miðað við stærð og geira og svona. Halda kynningar og sjá hvort starfsmenn þurfa námskeið og hvernig námskeið osfrv. Ritgerðin er að klárast en ég verð að gera þetta á sama tíma þannig að það verður frekar brjálað að gera hjá mér.
En núna þarf ég að klára smá fyrir vinnuna
knús,
Helga working girl

2 ummæli:
Til hamingju með nýju vinnuna, krútta.
Innilega til hamingju með vinnuna! Alveg frábært :) Gangi þér rosalega vel að byrja og að skrifa ritgerð.
Skrifa ummæli