6. sep. 2004

Þvílík helgi!!!

Vá hvað þetta er búin að vera geðveikt skemmtileg helgi, sú allra skemmtilegasta í langan tíma verð ég að segja. Lærði eitthvað mjög takmarkað en hey what the heck, það var alveg þess virði. Nú á föstudaginn komu bleiku gellurnar til mín í smá partý í sætu holuna okkar Freys og úr varð svona líka skemmtilegt kvöld, mikið spjallað og drukkið. Um eittleytið lá leið okkar svo í bæinn, byrjuðum á Hverfis og var bara allt í lagi þar, mun skemmtilegra en ég bjóst við verð ég að segja, var búin að fá ógeð en það var bara svona mikið stuð. Við tjúttuðum við nokkur góð á gólfinu og svo ákváðum við að kíkja líka á Sólon eftir að hafa hitt gamlan bekkjarfélaga Versló gellanna og tekið hann með okkur (hann var að vísu ekki í neinu bleiku en það má alltaf gera undantekningar) Þvílíkt stuð, ég hef ekki dansað svona mikið síðan ég veit ekki hvenær. Svona á maður að gera þetta!!! segi ekki meira stelpur, vel gert!!!!
Nú á laugardaginn vaknaði maður svo hæfilega sjúskaður og þreyttur en það lagaðist allt saman fljótlega. Ég og Freyr áttum saman kósý leti laugardag og svo um kvöldið kíkti Ásta vinkona til mín og borðaði með okkur heimilisfólkinu og drakk svo slatta af rauðvíni með mér og við ákáðum að rifja upp gamla tíma og horfa á Clueless, endalaust skemmtilegt. Ég var nú eiginlega búin að ákveða að vera heima um kvöldið en ákvað að skella mér með Frey og Hauki megagæjum, Ásta súpergella fór auðvitað með, á Drum and Base tónleika á Gauknum. Þetta var hreinasta snilld svo ekki sér meira sagt. Mikið hoppað og dansað, enda er þetta tónlist að mínu skapi, heavy taktur og bassi. Ég s.s. djammaði bæði fös og laug sem hefur ekki gerst lengi lengi enda var ég frekar þreytt en sæl á sunnudaginn. Þá fórum við ég og Freyr í frábæran sunnudagshádegismat til Trausta frænda og Bryndísar frænku og sátum þar alveg til að verða 17:30. Síðan lagði ég mig smá vegna þess að við vorum á leið í leikhús að sjá Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu. Þetta er sýning sem enginn má missa af!! Vá hvað þetta var flott, geðveik framsetning á þessu yndislega verki. Maður var alveg að missa sig þegar maður kom út, virkilega vel gert!!

En takk takk fyrir skemmtilega helgi öll þið sem ég hitti um helgina. Þurfti virkilega á svona helgi að halda =)

Knús

Engin ummæli: