
Jæja þá er ég að fara í enn eitt ferðalagið. Ég sit hérna í Keflavík og er að bíða eftir fluginu til New York, einhver seinkun í gangi :S En ég hlakka mikið til að hitta Freysann minn á eftir, ætlum að hafa það notalegt saman. Hver veit nema að maður fái sér meðgönguvænt sushi, nammi namm..... held það bara.
Annars er ég bara hress og kát, líður mjög vel. Verð gengin 30 vikur á mánudaginn þannig að þá eru bara 10 vikur eftir sem er bara ekki neitt sérstaklega mikið.
En hafið það nú gott um helgina =)
knús H

1 ummæli:
Njótið tímans saman :).
Hlakka svo mikið til að sjá þig í byrjun apríl með risastóra kúlu.
Skrifa ummæli