
Það hefur ekki verið neinn almennilegur vetur hérna í New York fyrr en núna, helgina sem ég ætlaði að fljúga heim. Sá í morgun að JFK var lokað vegna snjókomu þannig að ég ákvað að breyta miðanum mínum þannig að ég flýg ekki fyrr en annað kvöld heim. Nennti ekki að standa í því að bíða á vellinum. Átti greinilega ekkert að vera að fara frá Freysanum mínum. Annars er þetta farið að vera svoldið fyndið, þetta er í 3. skipti sem eitthvað kemur upp á þegar ég er að fara að fljúga. Reyndar hef ég alls ekkert á móti því að vera aukadag hérna þannig að í þetta skiptið var þetta í lagi. Nú er bara að vona að þeir verði búnir að koma fluginu í lag á morgun og að ég lendi ekki í miklum seinkunum.
Við erum búin að hafa það mjög fínt. Ég hef náð að hvíla mig töluvert, kaupa slatta af barnadóti og smá fyrir sjálfa mig. Við erum búin að ná að vera mjög mikið saman, borða góðan mat, hitta skemmtilegt fólk, fara í bíó og spá í bumbuna =) Freyr er að hugsa um að koma heim í mars þegar það er "spring break" þannig að það líður ekki langur tími þangað til ég sé hann aftur.
Nóg að gera hjá mér. Er á fullu að undirbúa fjarveru mína í vinnunni, svo er yoga og foreldranámskeið núna í febrúar ásamt undirbúningi fyrir veisluna í sumar.
Kíkið endilega á myndirnar =) Set svo inn nýjar bumbumyndir fljótlega.
Hafið það gott í vikunni og gangi ykkur vel með það sem þið eruð að gera.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli