31. mar. 2006

Tæplega 38 vikur...


Þá er nú aldeilis farið að styttast í komu kúlubúans. Bara 2 vikur í settan dag! Svo er það bara spurningin hvort krílið sé eitthvað að flýta sér og stríða foreldrum sínum smávegis eða hvort mann lofi pabbanum sínum að komast heim og hvíla sig smá fyrir átökin =) Við erum auðvitað orðin svakalega spennt og búin að græja nánast allt. Freyr setti saman skiptiborðið þegar hann var hérna hjá okkur í mars og svo er búið að kaupa bleiur, bossakrem, þvo meirihlutann af fötunum og fæðó taskan er nánast tilbúin.

Síðasti dagurinn í vinnunni er í dag og finnst mér þetta mjög skrítin tilfinning að vera að fara að hætta í bili. Það er hins vegar alveg kominn tími á hvíld, bumban er orðin svo stór og farin að síga töluvert mikið þannig að það er orðið erfitt að sitja mikið við tölvuna. Ég er líka farin að vakna á nóttunni eða mjög snemma þannig að það reynist stundum erfitt að geta ekki fengið sér blund yfir daginn.

En ég læt nú meira í mér heyra þegar nær dregur.

knús, Helga

Engin ummæli: