
Kúlubúinn ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér. Var sett 16. apríl en það gerðist bara ekki neitt. Hef fengið smá verki undanfarna daga en þeir hafa verið óreglulegir og frekar daufir. Freyr sætasti kom heim degi fyrr til mín og hefur verið algjörlega yndislegur að hugsa um mig þessa síðustu daga. Einnig hafa aðrir fjölskyldumeðlimir og vinir verið duglegir að bjóða fram aðstoð sína og þakka ég fyrir það =) alltaf gott að eiga góða að.
Læt vita ef eitthvað gerist og set inn myndir við fyrsta tækifæri.
knús, Bumbulínan

4 ummæli:
Heheh fyndin mynd.. (is anybody there? ;))
Vona að þetta fari allt að koma hjá ykkur og litli kúlubúi fari að láta sjá sig í þennan sólríka heim fljótlega.
Gangi ykkur vel með allt saman!
Jæja ætlar hann litli frændi ekkert að fara að láta sjá sig???
Til hamingju með strákinn ykkar, heyrumst fljótlega
Hæ Helga og Freysi, innilega til hamingju með litla strákinn. Vona að ykkur heilsist öllum vel :) Kv Halla C-bekkjarstelpa :)
Skrifa ummæli