2. apr. 2004

Hundaeigandi næstu 2 vikurnar

Nú er Tína komin í pössun til okkar á Túngötuna og verður hérna með okkur þangað til á þriðja í páskum. Mamma, pabbi og Kristbjörg eru s.s. að fara til Kanarí í sólina. Skemmtið ykkur vel =) Ég ætla að vera hérna á Íslandi fram yfir páska. Reyndar ætlum við að skella okkur í sveitina um páskana til að sækja Bjölluna. En við verðum ekki lengi vegna þess að það er nóg að gera í skólanum og vinnu. Svo á líka að kíkja á djamm. Ég er svo fengin því að vera ekki að fara að fljúga neitt, ég ætla að njóta þess að vera hérna heima á Íslandi með Freysanum mínum og hafa það gott. Nóg er ég búin að vera í burtu!

Helgin verður ágætlega viðburðarrík. Í kvöld er planið að vera heima og hafa kósí kvöld, á morgun verður svo matarboð þar sem Ástu, Ingu og Hrönn plús mönnum er boðið. Svo ætlum við kannski að kíkja eitthvað í bæinn og hafa það skemmtilegt. Ætli sunnudagurinn fari svo ekki í lestur og rólegheit.

Hafið það nú sem allra allra best um helgina

kveðja Helga hundakona

Engin ummæli: