Sælt veri fólkið!
Jæja þá gefur maður sér smá tíma til að skrifa hvað er að gerast hjá manni þessa dagana. Ég er á fullu núna að skrifa ritgerðina og er bara komin vel á veg með þetta. Mjög gaman og hvetjandi. Svo er ég á fullu að sækja um vinnur og er búin að fá mjög góð viðbrögð. Fæ að vita meira eftir helgi, spennó!!
Svo er bara allt að komast í rútínu og ég að fatta fyrir alvöru að ég er ekki að fara neitt meira út í bili. Mjög mikill léttir verð ég að segja.
Helgin verður róleg hjá mér. Í kvöld er ég svo að fara að borða Eldsmiðjupizzu með mömmu og Kristbjörgu systur. Svo er ég að fara að passa litla Birki Snæ þeirra Ingibjargar og Bigga. Þau ætla að skella sér saman út á lífið skötuhjúin, skemmtið ykkur vel elskurnar! Svo á laugardaginn er það bara læra meira, mjög líklega á Þjóðarbókhlöðunni og ekkert sérstakt planað um kvöldið, kannski bara meiri lærdómur, hmmmmm. Á sunnudaginn er það svo bara halda áfram með skrifin og fara svo út að borða og í leikhús með Frey og tengdó um kvöldið. Við erum að fara að sjá Rómeó og Júlíu (London uppfærsluna) í Borgarleikhúsinu. Hlakka mikið til, Shakespeare er nú svo dásamlegur!
En ég óska vinum og vandamönnum nær og fjær góðrar helgi. Gangið nú rækilega inn um gleðinna dyr og gerið allt sem ég myndi gera! =)
Góðar stundir!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Gangi þér vel að skrifa krútta (svo að þú komist sem fyrst í heimsókn).
Skrifa ummæli